top of page

SUMARHÚS 
íslensk hönnun fyrir íslenskar aðstæður

icelandic open nature.jpg

HÚSIN

Við kynnum með stolti Modular sumarhúsalínuna, hannaða og smíðaða með íslenskar aðstæður í huga. Húsin eru íslensk hönnun, hönnuð af viðurkenndri arkitektastofu. Húsin eru útfærð til að standast íslenskt veðurfar, virðingu við umhverfið og nýta náttúrulega birtu og landslag til fulls. Hönnunin byggir á skýrri rýmisnotkun, endingargóðum efnum og sterkum tengslum við íslenska náttúru.
Öll húsin eru fáanleg í tveimur útfærslum, týpu A og B, með smábreytingum á innra skipulagi til að mæta ólíkum þörfum og smekk.

Húsin eru afhent uppsett og að fullu tilbúin að utan með verönd sem fylgir.

Hægt er að velja um að fá húsin tilbúin til innréttinga eða eftir samkomulagi.

ÍSLENSK HÖNNUN

Velkomin í heim íslenskrar hönnunar þar sem einfaldleiki, fagurfræði og virðing fyrir náttúrunni fara saman í einstökum sumarhúsum.


Sumarhúsin eru hönnuð með íslenskt veðurfar og landslag í huga – þau bjóða upp á skjól og hlýju, björt og hlý rými og einstaka tengingu við umhverfið. Hvort sem þú sækist eftir rólegum helgum með fjölskyldunni eða sveitalegu athvarfi frá amstri dagsins, bjóða sumarhúsin okkar upp á frið og gæði í hverju smáatriði.

 

✔ Nútímaleg og náttúruleg hönnun
✔ Orkunýting og umhverfisvæn bygging
✔ Sveigjanlegar útfærslur og stærðir

✔ Hönnuð af íslenskri, viðurkenndri arkitektastofu
✔ Smíðað af fagfólki – byggð fyrir íslenskar aðstæður


Láttu drauminn rætast – eignastu sumarhús þar sem íslensk hönnun og náttúra mætast.

DJI_0126.JPG

SÉRSTAÐA HÚSANNA

Hönnuð með íslenskt landslag og veðurfar í huga
Sterk bygging, endingargóð efni, vönduð smíði
Skýr rýmisnotkun og fjölbreytt útfærsla
Tilbúin fyrir sveigjanlega uppsetningu og flutning
Umhverfisvæn þar sem hugað er að vistvænni framleiðslu og kolefnisjöfnun
Samspil við náttúruna – hámarksbirta, skjól og sjónlínur
Smíðað af fagfólki – byggð fyrir íslenskar aðstæður
Sveigjanlegar útfærslur og stærðir

Sjálfbærni og kolefnisspor

Við leggjum áherslu á að lágmarka umhverfisáhrif í allri okkar starfsemi, frá framleiðslu til afhendingar fullbúinna húsa.

Húsin eru framleidd í verksmiðju í Lettlandi þar sem nýting hráefna er markviss og úrgangur lágmarkaður miðað við hefðbundnar byggingaraðferðir. Við leggjum áherslu á að vinna með framleiðendum sem fylgja viðurkenndum umhverfisstöðlum, svo sem ISO 14001.

Flutningur til Íslands fer fram með skipaflutningum sem hafa lægra kolefnisspor en aðrar samgönguleiðir, og við vinnum markvisst að því að hámarka nýtingu farms til að draga úr losun á hverja einingu.

Forframleidd hús bjóða upp á umtalsverða kosti í sjálfbærni, þar sem framleiðsla í verksmiðju tryggir betri efnisnýtingu, minni úrgang og aukna gæðastýringu. Að auki eru húsin hönnuð með orkunýtni í huga sem dregur úr rekstrarkostnaði og umhverfisáhrifum til lengri tíma.

Markmið okkar er að þróa starfsemina stöðugt í átt að aukinni sjálfbærni og minni kolefnisspori, með gagnsæi og mælanlegum árangri að leiðarljósi.

Sjálfbærni
í tölum

Dæmigerð hús frá okkur eru um 88,3 m² að grunnfleti, með svefnlofti að hluta. Með húsinu fylgir einnig efni í verönd, sem styður hagkvæma nýtingu í sama afhendingarferli.


Hvert hús er að jafnaði um 40 tonn í flutningi. Miðað við þá þyngd og flutning frá Lettlandi til Íslands má áætla að kolefnisspor flutnings fyrir eitt hús sé um 1,5–2,5 tonn CO2e, eftir endanlegri flutningsleið, nýtingu farms og landflutningum til og frá höfnum. 


Forframleiðsla í verksmiðju stuðlar að betri efnisnýtingu og minni byggingarúrgangi en hefðbundin staðarbygging. Rannsóknir benda til að forframleiddar lausnir geti dregið úr byggingarúrgangi miðað við hefðbundnar aðferðir, þó endanleg niðurstaða ráðist af hönnun, verkferlum og efnisvali. 


Við vinnum að því að safna enn nákvæmari gögnum frá framleiðanda og flutningsaðilum svo hægt sé að birta staðfestar tölur um kolefnisspor hvers húss með enn meiri nákvæmni.

Walking in Nature

HAFÐU SAMBAND

Besta leiðin til að sjá hvort húsin okkar geta hentað þér er að hafa samband við okkur. 

Smelltu á takkann hér að neðan, fylltu út í þínar upplýsingar og við höfum samband við þig við fyrsta tækifæri.

DJI_0126.JPG
bottom of page